Endurgerð á Lyngheiði 2020 - Röskun á umferð
Unnið verður að endurgerð á götunni Lyngheiði á Selfossi frá miðjum maí næstkomandi og fram til 1. október 2020
Verkið felur í sér jarðvegsskipti í götu, endurnýjun stofnlagna fráveitu, vatnsveitu og hitaveitu ásamt heildar endurnýjun á yfirborði götu og gangstétta. Af þessum sökum má búast við röskun á umferð sem og truflun af vinnu þungavinnuvéla á meðan á verki stendur.
Verkinu er skipt í 2 áfanga:
- Áfangi 1: Lagning fráveitu frá Fossheiði að Lyngheiði á lóð Eyravegar 27 og 29 skal lokið 15. júní 2020. Einnig skal vera búið að leggja veitulagnir og fylla upp í lagnaskurði milli Fossheiðar og Lyngheiðar, þannig að akfært sé aftan við Eyraveg 27 og 29. Malbikun á þessum áfanga verður lokið þann 1. júlí 2020.
- Áfangi 2: Lagning fráveitu, lagna og búnaðar í Lyngheiði skv. teikningum, styrktarlag, burðarlag og yfirborðsfrágangur. Verkinu skal að fullu lokið þann 1. október 2020.
Verktaki mun að öllu óbreyttu hefja störf eftir 18. maí nk.
Neyðarnúmer Selfossveitna er 482 1324
Íbúar við Lyngheiði eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem kunna að verða vegna framkvæmdarinnar.
Ef íbúar óska eftir frekari upplýsingum er
þeim vinsamlega bent á að hafa samband við
eftirlitsaðila, Jóhann Ágústsson.
Jóhann Ágústsson | johann.agustsson@gmail.com
Sími | 861 5605
Með kveðju
Mannvirkja- og umhverfissvið Árborgar