Endurnýjun þjónustusamnings Svf. Árborgar við Golfklúbb Selfoss
Sveitarfélagið Árborg hefur endurnýjað þjónustusamning við Golfklúbb Selfoss vegna umhirðu á grasvöllum í sveitarfélaginu.
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri og Páll Sveinsson, formaður GOS hafa undirritað þjónustusamning um áframhaldandi samstarf Svf. Árborg og GOS. Samningur kveður á um að GOS sjái um alla umhirðu í kringum æfinga-og keppnisvelli í knattspyrnu í sveitarfélaginu. Um er að ræða slátt, söndun, áburðagjöf og annað viðhald til að halda völlunum í sem besta standi fyrir iðkendur. Samningurinn gildir út árið 2027.
Á myndinni er auk Gísla og Páls þeir Sveinn Ægir Birgisson, varabæjarfulltrúi, Kjartan Björnsson, bæjarfulltrúi, Bragi Bjarnason, deildastjóri frístunda- og menningardeildar, Hlynur Geir Hjartarson, framkvæmdastjóri GOS og Bjarki Þór Guðmundsson, faglegur vallarstjóri.