Endurútreikningur á afslætti af fasteignaskatti
Sveitarfélagið Árborg veitir afslátt af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega.
Reglurnar má nálgast hér.
Í kjölfar álagningar skattsins í júní ár hvert er afsláttur af fasteignaskatti endurreiknaður miðað við skattframtal ársins á undan og er endurútreikningi nú lokið.
Við álagningu fasteignagjalda í upphafi árs var afsláttur reiknaður miðað við skattframtal 2024 og er því afsláttur að breytast hjá einhverjum greiðendum til hækkunar eða lækkunar á greiðslum þegar afslátturinn er uppfærður miðað við skattframtal ársins 2025.
Í töflu að neðan má sjá framreiknað tekjuviðmið sveitarfélagsins vegna afsláttar fyrir elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti fyrir árið 2025. Þeir íbúar sem þetta nær til fá breytingu á álagningarseðli sendan í gegnum www.island.is
Tekjuviðmið vegna afsláttar fyrir elli- og örorkulífeyrisfélaga af fasteignaskatti 2026:
|
Afsláttur |
Einstaklingar |
Hjón/sambúðarfólk |
|
100% afsláttur ef tekjur eru allt að |
kr. 6.490.000 |
kr. 8.600.000 |
|
75% afsláttur ef tekjur eru allt að |
kr. 7.270.000 |
kr. 9.790.000 |
|
50% afsláttur ef tekjur eru allt að |
kr. 8.030.000 |
kr. 10.975.000 |
|
25% afsláttur ef tekjur eru allt að |
kr. 8.785.000 |
kr. 12.165.000 |

