Enginn launamunur á grunnlaunum karla og kvenna í Árborg
Nú á dögunum fékk Sveitarfélagið Árborg endurvottun á jafnlaunakerfinu ÍST 85:2012.
Í launagreiningu sem unnin var í tengslum við endurvottunina kom í ljós að enginn launamunur mældist á grunnlaunum karla og kvenna.
Er þetta í fyrsta sinn sem enginn launamunur á grunnlaunum mælist í launagreiningu síðan Árborg fékk jafnlaunavottun árið 2019. Árið 2021 var 1% launamunur á grunnlaunum, körlum í hag.
Frá því að Árborg fékk jafnlaunavottun árið 2019 hefur verið unnið markvisst að því að bæta ferla við launasetningar ásamt því að greina launamun á milli kynjanna og leiðrétta. Þennan frábæra árangur má rekja til þessara þátta ásamt aukinni fræðslu og stuðningi til stjórnenda.