Listaflakk um Árborg 17. október
Menningarmánuðurinn október í Sveitarfélaginu Árborg býður upp á fjölda spennandi viðburða sem endurspegla grósku og sköpunarkraft sveitarfélagsins.
Laugardaginn 17. október verður einn af hápunktum menningarmánaðarins þegar listafólk í Árborg býður upp á viðburðinn Listaflakk um Árborg.
Um 40 starfandi listamenn á Eyrarbakka, Stokkseyri og Selfossi taka þátt í deginum með einum eða öðrum hætti. Myndlist, ljósmyndun, bókmenntir, tréútskurður, ullarvefnaður, tónlist og margt fleira verður í boði, ásamt skemmtilegu spjalli við listafólk og gesti.
Þetta er kjörið tækifæri til að kynnast þeirri ríku flóru listafólks sem býr og starfar í Árborg.
Dagskráin verður birt í heild sinni á miðlum Árborgar, en alla dagskrá menningarmánaðarins má finna á www.arborg.is/vidburdalisti




