Eva María Baldursdóttir og Egill Blöndal íþróttakona og -karl Árborgar 2021
Frístunda- og menningarnefnd Árborgar afhendi í gær, mán. 7.mars afreksíþróttafólki viðurkenningar fyrir góðan árangur á árinu 2021.
Eva María Baldursdóttir, frjálsíþróttakona og Egill Blöndal, júdómaður sem bæði koma frá Ungmennafélagi Selfoss, voru útnefnd íþróttakona og íþróttakarl Árborgar árið 2021. Tilnefningar til kjörsins komu frá flestum íþróttafélögum í sveitarfélaginu en 25 íþróttamenn voru tilnefndir. Það voru Guðbjörg Jónsdóttir, formaður frístunda- og menningarnefndar og Kjartan Björnsson, bæjarfulltrúi sem afhentu íþróttamönnunum viðurkenningarnar.
Björgunarfélag Árborgar hlaut hvatningarverðlaun frístunda- og menningarnefndarinnar þetta árið fyrir öflugt ungliðastarf félagsins. Þetta starf hefur lagt grunninn að öflugu starfi félagsins og hefur tryggt nýja félaga í almenn björgunarsveitarstörf á hverju ári. Sesselja Birgisdóttir tók við viðurkenningunni fyrir hönd félagsins.
Alexander Freyr Olgeirsson spilaði nokkur lög fyrir gesti við góðar undirtektir.