Fallið frá ráðningu nýs sviðsstjóra
Að höfðu samráði við nýjan bæjarstjóra, Fjólu Kristinsdóttur, hefur verið ákveðið að falla frá ráðningu nýs sviðsstjóra fjölskyldusviðs.
Þetta er gert vegna þeirra skipulagsbreytinga sem hafa verið gerðar á fjölskyldusviði og stjórnsýslusviði og eru í skoðun, eins og fram kom á fyrsta fundi bæjarstjórnar miðvikudaginn 08. júní.
Starfið verður auglýst aftur í haust en þá að öllum líkindum með breyttum áherslum.
Samið hefur verið við Þorstein Hjartarson að starfa áfram sem sviðsstjóri hjá sveitarfélaginu til næstu áramóta.