Farsæld barna í Árborg
Um síðustu áramót var stofnað þverfaglegt teymi í Árborg sem gengur undir nafninu farsældarteymið.
Teymið var stofnað í kjölfar gildistöku laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna en þau tóku gildi 1. janúar sl.
Hlutverk teymisins er að vinna að innleiðingu laganna, móta verkferla og endurskoða starfshætti allra helstu deilda fjölskyldusviðs, þar með talið skólanna, í takt við þessa nýju löggjöf. Teymið hefur átt í góðu samstarfi við starfsfólk leik- og grunnskóla og frístundaþjónustu auk þess að vera í samstarfi við Barna- og fjölskyldustofu um innleiðingu laganna. Gert er ráð fyrir að innleiðingarferlið taki 3-5 ár en það er ljóst að Árborg er vel á veg komið og hefur t.d. tekið að sér að vera frumkvöðlasveitarfélag í þessum málaflokki.
Farsældin snýst um að skapa börnum bestu skilyrði til að geta þroskast á eigin forsendum til framtíðar.
Með lögunum er verið að leggja áherslu á að samstarf þjónustukerfa verði hluti af almennri grunnþjónustu og tryggja aðgengi barna og forsjáraðila að snemmtækri og samþættri þjónustu í takt við þarfir á hverjum tíma.
Stigskipt farsældarþjónusta tryggir forsjáraðilum þjónustu tengiliðar og/eða málstjóra sem styður við farsæld barns með upplýsingagjöf, ráðgjöf og aðgengi að einstaklingsbundnum og snemmtækum stuðningsúrræðum. Tengiliður getur t.d. verið sérkennslustjóri í leikskóla, deildarstjóri í grunnskóla, sérfræðingar í stoðþjónustu leik-, grunn og framhaldsskóla, hjúkrunarfræðingur í ungbarnavernd eða sérfræðingur hjá fjölskyldusviði. Málstjórar eru starfsmenn fjölskyldusviðs sem bera ábyrgð á að stuðningsteymi sé sett saman og gerð sé stuðningsáætlun.
Lykillinn að samþættri farsældarþjónustu liggur í möguleikum þjónustukerfa til samráðs.
Með því að forsjáraðilar óski eftir samþættingu þjónustu þá um leið heimila þeir þjónustukerfunum að vinna saman og miðla upplýsingum sem styðja við farsæld barns.
Farsældarteymið vinnur að gerð fræðslu- og kynningarefnis sem verður aðgengilegt íbúum með haustinu en hægt er að fá nánari upplýsingar hjá skólastjórnendum á starfstíma leik- og grunnskóla og hjá starfsfólki fjölskyldusviðs.
Farsældarteymi Árborgar
Anna Rut Tryggvadóttir | teymisstjóri barnaverndarþjónustu
Guðný Ingibjörg Rúnarsdóttir | leikskólaráðgjafi skólaþjónustu
Heiða Ösp Kristjánsdóttir | deildarstjóri félagsþjónustu
Kristín Björk Jóhannsdóttir | verkefnastjóri farsældarteymis
Lucinda Árnadóttir | yfirsálfræðingur skólaþjónustu
Margrét Björk Brynhildardóttir | deildarstjóri skólaþjónustu
Þorsteinn Hjartarson | sviðstjóri fjölskyldusviðs
Þórunn Kristjánsdóttir | ráðgjafi í málefnum fjölskyldna