Fjárhagsáætlun Svf. Árborgar lögð fram til fyrri umræðu
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2023 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag, miðvikudaginn 23. nóvember.
Gert er ráð fyrir að rekstrarniðurstaða samstæðunnar verði neikvæð sem nemur 1.530 milljónum og að niðurstaða A-hluta verði neikvæð um 2.082 milljónir. Veltufé frá rekstri er áætlað 444 milljónir á samstæðu sveitarfélagsins. Þetta er ekki ásættanlega niðurstaða en endurspeglar því miður stöðu sveitarfélagsins í dag og það verkefni sem liggur fyrir bæjarstjórn og starfsmönnum. Unnið verður enn frekar í áætlun 2023 og þriggja ára áætlun milli umræðna með það markmið að ná fram frekari hagræðingu og aukinni tekjuöflun á næstu árum.
Í fjárhagsáætlun 2023 er lögð áhersla á að standa vörð um grunnþjónustu við íbúa. Mennta- og velferðarmál og áframhaldandi innleiðing laga um þjónustu í þágu farsældar barna eru því í lykilhlutverki. Frístundastarf barna er þar á meðal og verður áfram í boði frístundastyrkur að upphæð 45 þúsund á hvert barn 5-17 ára sem er búsett í Árborg.
Bæjarstjórn Árborgar lækkar hluta fasteignagjalda á bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði til að mæta gríðarlegri hækkun fasteignamats í sveitarfélaginu. Almenn fasteignagjöld í Árborg munu því að meðaltali verða nær almennri verðlagsþróun næsta árs en ekki hækka um tugi prósenta vegna fasteignamatshækkana.
Umfangsmiklar framkvæmdir verða áfram í Árborg á næsta ári til að tryggja að grunn innviðir mæti þörfum íbúa. Því miður þarf að færa einhverja framkvæmdir til milli ára í þriggja ára áætlun en stærstu fjárfestingar ársins 2023 verða bygging 2.áfanga Stekkjaskóla, hreinsistöð í Geitanesi, gatnagerð í Bjarkarlandi og Víkurheiði ásamt jarðborun Selfossveitna eftir heitu vatni. Unnið verður markvisst að viðhaldi fasteigna og gatnakerfis því þótt fjárhagsstaðan sé erfið þá er mikilvægt að viðhald þessara og fleiri lykilþátta í samfélaginu sé haldið áfram.
Gjaldskrár sveitarfélagsins hækka í takti við forsendur fjárhagsáætlunar og ráðist verður í viðbótar hagræðingaraðgerðir sem nema um 150 milljónum á árinu 2023 eða sem nemur um 1% af heildarútgjöldum samstæðunnar. Það er von bæjarstjórnar Árborgar að með samstilltu átaki kjörinna fulltrúa og starfsmannna verði þessu markmiði náð með farsælum hætti á árinu.
Gert er ráð fyrir 5,0 % fjölgun íbúa í Árborg og miðað við uppfærða spá þá orðnir um 11.800 í lok árs 2023. Með fjárhagsáætlun 2023 er einnig lögð fram þriggja ára áætlun áranna 2024, 2025 og 2026 til fyrri umræðu.
Nánari útskýring á fasteignagjöldum, útsvari og gjaldskrárhækkunum
Fasteignagjöld skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, fráveitu- og vatnsgjalda og sorphirðugjalda.
Fasteignaskatturinn helst óbreyttur milli ára. Þessi liður innan fasteignagjalda er tengdur beint við framlög jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og lækkun hans myndi þýða lægri framlög úr sjóðnum. Hann er því ekki lækkaður milli ára. Lóðarleiga mun sömuleiðis haldast óbreytt milli ára.
Fráveitugjaldið hefur verið 0,251% af fasteignamati en mun lækka í 0,10% árið 2023 ásamt því að vatnsgjald fer úr 0,172% í 0,15%. Um er að ræða 60% lækkun á fráveitugjaldinu og 13% lækkun á vatnsgjaldinu milli ára.
Sorphirðugjaldið hækkar um 9% milli ára vegna aukinna útgjalda við sorphirðu. Það er þó fyrirséð að endurskoða þurfi sorphirðugjaldið á árinu í takti við þróun sorphirðu og ný lög sem taka gildi um næstu áramót.
Með verulegri lækkun á fráveitu- og vatnsgjalds vill bæjarstjórn koma til móts við íbúa og fyrirtæki vegna verulegrar hækkunar á fasteignamati fyrir árið 2023.
Útsvar fyrir árið 2023 verður óbreytt eða 14,52%. Almennar gjaldskrárhækkanir verða 9% sem er í samræmi við forsendur fjárhagsáætlunar.