Flugeldasýningu frestað til laugardags kl. 20
Í ljósi þess að veðurspá er okkur óhagstæð á þrettándanum hefur verið ákveðið að fresta árlegri flugeldasýningu til laugardagsins 8. janúar og hefst hún stundvíslega kl. 20:00.
Þrátt fyrir að þrettándagleðin á Selfossi verði með óhefðbundnu sniði annað árið í röð býður Ungmennafélag Selfoss upp á glæsilega flugeldasýningu í góðu samstarfi við Sveitarfélagið Árborg og Björgunarfélag Árborgar.
Þar sem flugeldasýningarnar eiga að sjást vel á stóru svæði er gengið út frá að fólk njóti sýningarinnar heiman frá sér eða úr bílum sínum til að allra sóttvarna sé gætt.
Þeim sem kjósa að njóta flugeldasýningarinnar úr bílum sínum er bent á bílastæði við íþróttahúsið Iðu og Fjölbrautaskóla Suðurlands auk góðra bílastæða við leikskólann Hulduheima. Þá eru og bílastæði við Tíbrá og Selið sem og við Engjaveg.
Íbúar og gestir sem kjósa að vera gangandi eru beðnir um að virða fjöldatakmarkanir, gæta vel að nándartakmörkunum, bera andlitsgrímur, dreifa sér vel um svæðið og forðast óþarfa samskipti líkt og sóttvarnarreglugerðir segja til um.
Ungmennafélag Selfoss og Sveitarfélagið Árborg