Forvarnardagurinn haldinn í 16 sinn
Miðvikudaginn 13. október 2021 verður Forvarnardagurinn haldinn í grunnskólum Sveitarfélags Árborgar.
Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands. Aðrir samstarfsaðilar að Forvarnardeginum eru Embætti landlæknis, sem sér um verkefnisstjórn dagsins, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Samfés, Heimili og skóli – landsamtök foreldra, Ungmennafélag Íslands, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Skátar, Rannsóknir og greining og SAFF – Samstarf félagasamtaka í forvörnum.
Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti og er beint sérstaklega að nemendum í 9. bekk grunnskóla og á 1. ári í framhaldsskólum. Á Forvarnardaginn ræða nemendur meðal annars um hugmyndir sínar og tillögur um samverustundir með fjölskyldu og skipulagt íþrótta- og tómstundastarf, en þetta eru á meðal verndandi þátta gegn áhættuhegðun.
Markmið Forvarnardagsins er að vekja athygli á mikilvægum þáttum í forvarnarstarfi sem snúa að ungu fólki. Á heimasíðu Forvarnardagsins er meðal annars að finna fróðleik og myndbönd um forvarnir www.forvarnardagur.is
Minnumst þess hversu góðum árangri hefur verið náð. Sem dæmi má nefna að fyrir rúmum 20 árum sögðust 42% nemenda í 10. bekk hafa neytt áfengis síðustu 30 daga í könuninni „Ungt fólk“, en árið 2021 var talan komin í 6% og árið 2020 höfðu 53% nemenda í framhaldsskólum aldrei orðið ölvaðir.
Á vef Embætti landlæknis er að finna staðreyndablað um forvarnir í skólum sem mikilvægt er að hafa til hliðsjónar þegar unnið er að forvörnum.