Framkvæmdir við endurgerð á Sunnuvegi
Nú eru hafnar framkvæmdir við endurgerð á Sunnuvegi, meðfylgjandi er fyrirhuguð áfangaskipting yfir framkvæmdarsvæði og tímabil.
Götunni verður skipt í fjögur framkvæmdasvæði:
25. apríl - 29.maí - merkt með grænu
29. mai - 03.júlí - merkt með rauðu
03. júlí - 07. ágúst - merkt með bláu
07. ágúst - 11. september - merkt með bleiku
Eftir 11. september verður farið í hitaveitu, fjarskiptalagnir, yfirborðsfrágang og malbikun og verður þá allt framkvæmdasvæðið sem er sýnt hér að ofan undir í framkvæmdum út október.
Áætluð verklok eru 28.október.
Ef íbúar óska eftir frekari upplýsingum er þeim vinsamlega bent á að hafa samband við Guðjón Sigfússon eftirlitsaðila verksins, netfang gudjon@vgs.is eða í síma 898 1540
Íbúar við Sunnuveg eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem kunna að verða vegna framkvæmdarinnar.