Frístundaheimili Árborgar 23 - 24
Opnað hefur verið fyrir skráningu á frístundaheimili Árborgar skólaárið 2023 - 2024
Frístundaheimilin í Árborg eru í boði fyrir börn í 1.- 4. bekk og starfa við alla grunnskóla sveitarfélagsins.
- Bifröst við Vallaskóla
- Bjarkarból við Stekkjaskóla
- Hólar við Sunnulækjarskóla
- Stjörnusteinar við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri
Hlutverk frístundaheimila er að bjóða upp á fjölbreytt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur m.a. með hópastarfi, smiðjum, útiveru og vali. Markmið frístundaheimila er að hvert barn fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu.
Umsókn gildir eitt skólaár í senn (ágúst - júní) og eru börn samþykkt inn eftir reglum sveitarfélagsins. Við skráningu er mikilvægt að tryggja að allar upplýsingar séu réttar og sérþarfir skráðar. Þegar barn fær vistun á frístundaheimili þá berst boð um vistun á það netfang sem fylgdi skráningu barns.
Upplýsingar um umsóknir er hægt að nálgast hjá hverju frístundaheimili og í þjónustuveri Árborgar í síma 480 1900
Meira um frístundir í Sveitarfélaginu Árborg á frístundavefnum