Frístundamessa Árborgar laugardaginn 5. september
Frístundamessa Árborgar verður haldin í Kappahl-höllinni laugardaginn 5. september kl. 10:00–12:00. Þar gefst börnum, ungmennum og fjölskyldum þeirra tækifæri til að kynna sér fjölbreytt íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarf sem er í boði í sveitarfélaginu.
Á Frístundamessunni koma saman fjölmörg félög og aðrir aðilar sem standa að frístundastarfi fyrir börn og ungmenni í Árborg.
Gestir geta gengið á milli stöðva, kynnt sér starfsemina, hitt fulltrúa félaga og fengið upplýsingar um það starf sem verður í boði í vetur. Á mörgum stöðvum verður jafnframt hægt að prófa ýmislegt og spreyta sig á skemmtilegum verkefnum og viðfangsefnum.
Markmið Frístundamessunnar er að gera börnum, ungmennum og fjölskyldum þeirra auðveldara að kynna sér á einum stað þá fjölbreyttu möguleika sem standa þeim til boða og vonandi finna eitthvað við sitt hæfi. Við hvetjum fjölskyldur til að kíkja við á laugardeginum, kynna sér fjölbreytt frístundastarf í Árborg og eiga skemmtilega stund saman.Ert þú með starfsemi sem á heima á Frístundamessunni? Aðilar sem standa að íþrótta-, tómstunda- eða æskulýðsstarfi fyrir börn og ungmenni og hafa áhuga á að taka þátt í Frístundamessunni geta haft samband í tölvupósti á elly.t@arborg.is fyrir nánari upplýsingar.

