Frístundastyrkur Árborgar hækkar um 10.000 kr.
Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi 2.apríl sl. sem hluta af aðgerðum sveitarfélagsins vegna COVID-19 að hækka frístundastyrkinn í Árborg um 10.000 kr. og verður hann því í heildina 45.000 kr. árið 2020.
Með hækkun frístundastyrksins vill Bæjarstjórn Árborgar koma til móts við barnafjölskyldur í samfélaginu þar sem starfsemi íþrótta- og frístundafélaganna hefur verið takmörkuð vegna COVID-19 veirunnar og undirstrika um leið mikilvægi skipulagðs íþrótta- og frístundastarfs sem hluta af daglegu lífi barna og ungmenna. Frístundastyrkurinn er fyrir börn á aldrinum 5 - 17 ára sem hafa lögheimili í Árborg og er hægt að nota styrkinn til að greiða fyrir flestar frístundir barna.
Þeir foreldrar sem hafa nú þegar nýtt hluta af frístundastyrknum fyrir árið 2020 eiga þá inni mismuninn að 45.000kr. T.d. ef búið er að nýta 35.000kr. í frístundatarf í febrúar þá á viðkomandi barn 10.000 kr. eftir til að nota fyrir 31.desember 2020.
Nánari upplýsingar um frístundastyrkinn má finna hér: https://www.arborg.is/ibuar/fristund-og-sundlaugar/fristundir/fristundastyrkur/