Frítt í Fischersetrið á Selfossi og Húsið á Eyrarbakka mið. 10.febrúar
Í samstarfi við Geðhjálp og G-vítamín daga félagsins býður Sveitarfélagið Árborg íbúum og gestum á Fischersafnið á Selfossi og Húsið á Eyrarbakka miðvikudaginn 10. febrúar milli kl. 16:00 og 19:00.
Fáðu þér G-Vítamín! Geðhjálp stendur fyrir átakinu G-Vítamín á þorra þar sem verndandi þáttum geðheilsu er gefinn gaumur. Alla daga þorrans er bent á eina aðgerð á dag sem nota má sem G-vítamín. Miðvikudaginn 10.febrúar er G-vítamín dagsins að „Gleyma sér“. Því er tilvalið að fara á safn sem er góð leið til að gleyma sér og njóta menningar og listar í leiðinni. Endilega nýtið tækifærið, ef ekki á þeim degi, þá þegar hentar. Það er verðmætt að leyfa sér að gleyma sér. Frekari upplýsingar um söfn sem taka þátt á gvitamin.is. Það þarf ekki að skrá sig til að fá aðgang að söfnunum. Viltu meira G-Vítamín? Á gvitamin.is er hægt að skrá sig og fá heilræði dagsins send í tölvupósti allan þorra ásamt möguleika á fjöldanum öllum af geðbætandi vinningum sem dregnir eru út daglega.
Sveitarfélagið Árborg tekur þátt í verkefninu með því að bjóða íbúum og gestum á Fischersetrið á Selfossi og í Húsið á Eyrarbakka miðvikudaginn 10. febrúar milli kl. 16:00 og 19:00 ásamt því að bjóða frítt í sund í sundlaugum Árborgar á Selfossi og Stokkseyri miðvikudaginn 17. febrúar.
