Fundarboð(26)
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 19. ágúst 2020 Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl.17:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
1. 2008056 - Tillaga frá UNGSÁ um byggingar sem byggðar eru á vegum sveitarfélagsins séu allar svansvottaðar Ungmennaráð Sveitarfélagsins Árborgar skorar á Fræðslunefnd og bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar að byggingar sem byggðar eru á vegum sveitarfélagsins séu allar svansvottaðar og góð byrjun væri grunnskóli sunnan Suðurhóla.
2. 2001293 - Deiliskipulagstillaga Hellisland 36
Tillaga frá 49. fundi skipulags- og byggingarnefndar, frá 12. ágúst sl. liður 7. Deiliskipulagstillaga Hellisland 36, tillagan hefur verið auglýst og engar athugasemdir hafa borist.
Lagt er til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt.
3. 2002046 - Tillaga að færslu milli liða í fjárfestingaáætlun 2020, viðauki nr. 5.
Tillaga frá 28. fundi eigna- og veitunefndar, frá 12. ágúst sl., liður 2, Gervigras á íþróttasvæði. Nefndin felur sviðsstjóra að bjóða út kaup og lagningu á nýju gervigrasi á vallarsvæði við Engjaveg, ásamt gervigrasi í fjölnota íþróttahús. Nefndin felur sviðsstjóra að útbúa viðauka við fjárfestingaráætlun þar sem koma fram nauðsynlegar tilfærslur milli liða vegna framkvæmdarinnar og leggja fyrir bæjarstjórn.
Lagt er til við bæjarstjórn að tilfærsla á viðauka í fjárfestingaráætlun vegna kaupa á gervigrasi á íþróttavöll verði samþykkt.
4. 2007143 - Samkomulag um íbúðabyggð í Jórvík 1
Tillaga til bæjarstjórnar að samkomulagi við Akurhóla ehf. kt. 421216-0370 um íbúabyggð í landi þeirra, Jórvík 1, landnúmer L210193.
Fundargerðir
5. 2006005F - Bæjarráð - 78
78. fundur haldinn 11. júní.
6. 2006012F - Bæjarráð - 79
79. fundur bæjarráðs haldinn 25. júní.
7. 2007001F - Bæjarráð - 80
80. fundur haldinn 9. júlí.
8. 2007004F - Bæjarráð - 81
81. fundur haldinn 23. júlí.
9. 2007006F - Bæjarráð - 82
82. fundur haldinn 6. ágúst.
Gísli Halldór Halldórsson
bæjarstjóri