Fyrsta skóflustunga tekin að nýjum grunnskóla
Föstudaginn 6. nóvember var tekin fyrsta skóflustungan að nýjum grunnskóla í Björkurstykki hinum nýja Stekkjaskóla.
Helga Sighvatsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga, Arna Ír Gunnarsdóttir, formaður bygginganefndar og Hilmar Björgvinsson, skólastjóri Stekkjaskóla tóku fyrstu skóflustunguna að nýjum grunnskóla í Björkurstykki.
Hafin er jarðvinna að fyrsta áfanga verkefnisins sem verður í heildina 4.592m2. Í fyrsta áfanga mun skapast aðstaða fyrir 1. - 4. bekk grunnskóla, ásamt sérgreina- og frístundarými, fjölnota sal, eldhúsi og starfsmannaaðstöðu.
Stefnt er að opnun á hluta af fyrsta áfanga Stekkjaskóla haustið 2021 fyrir nemendur í 1. - 4. bekk.
Heildarstærð nýs mannvirki við Björkurstykki verður 11.100m2 og mun hýsa 1. - 10. bekk grunnskóla, Tónlistarskóla Árnesinga, leikskóla og íþróttarhús.