Fyrsti snjallmælirinn settur upp
Þann 26.ágúst var fyrsti snjallmælir Selfossveitna settur upp í Sveitarfélaginu Árborg. Um er að ræða fyrsta af tæplega 800 mælum sem áætlað er að setja upp á þessu ári hjá íbúum og fyrirtækjum í sveitarfélaginu.
Á næstu 5 árum er ætlunin að skipta út öllum eldri mælum og setja snjallmæla í staðinn. Mælarnir eru keyptir í gegnum Set ehf. á Selfossi en þeir eru frá Diehl í Þýskalandi.
Óhætt er að óska íbúum öllum til hamingju með þennan áfanga þar sem þetta mun bæta notendaþjónustu til muna þar sem hægt er að fylgjast með notkun og hitastigi í rauntíma og mælirinn sendir inn álestur sjálfur.