GIS dagurinn 17. Nóvember
Í dag, 17. nóvember er alþjóðadagur landupplýsinga . Hvað eru landupplýsingar (GIS: geographic information systems), hvers vegna skipta þær máli og hvað koma þær sveitarfélögum við?
GIS er kerfi sem stýrir margvíslegum staðbundnum gögnum, greinir þau og kortleggur
Landupplýsingakerfi tengir landupplýsingagögn við kort með því að blanda saman staðsetningargögnum (hvar tiltekið fyrirbæri er) með alls kyns lýsigögnum (hvað tiltekið fyrirbæri er, umfang og fleira). Slíkt tól veitir okkur grundvöllinn til að tengja saman kortlagningu og greiningartól vísinda og iðnaðar. GIS hjálpar okkur að skilja mynstur, tengsl og landfræðilegt samhengi þess sem er kortlagt. Þannig náum við fram betra flæði upplýsinga og samskipta ásamt því að geta tekið upplýstar ákvarðanir þegar farið er í framkvæmdir eða teknar eru stjórnsýslulegar ákvarðanir, svo eitthvað sé nefnt.
Fyrir utan þau hefðbundnu landupplýsingagögn sem sveitarfélög nýta sér (lóðir, byggingareitir, byggingar, lagnir og aðrir innviðir) nýtum við landupplýsingar okkar til að stýra snjómokstri, götusópun, grasslætti og svo eitthvað sé nefnt. Þá eru landupplýsingagögn ómissandi við hönnun nýrra svæða, skipulagsgerðar og við ákvörðun áframhaldandi uppbyggingar.
Landupplýsingavefur Árborgar hefur undanfarin misseri gengið í gegn um nokkra endurskoðun og er í stöðugri uppbyggingu. Þar má m.a. fá upplýsingar um teikningar af húsum, lögnum, lóðamörkum og skipulagsmörkum. Þá er unnið að því að birta í náinni framtíð upplýsingar um gönguleiðir, forgangsröðun snjómoksturs, staðsetningu gámastöðva, bekkja og ruslafata bæjarins.
Ert þú með ábendingu?
Í tilefni dagsins, spyrjum við því ykkur íbúana; hvernig getum við bætt landupplýsingavefinn okkar enn betur og hvaða upplýsingar viljið þið sjá á kortavef sveitarfélagsins?
Vinsamlegast ábendingar og hugmyndir á Landupplýsingavef sveitarfélagsins | luka@arborg.is
Bestu kveðjur og til hamingju með GIS daginn!