Goðheimar er nafn nýja leikskólans á Selfossi
Á 23. fundi fræðslunefndar, sem haldinn var 11. júní sl., var farið yfir fjölmargar tillögur í nafnasamkeppni fyrir nýjan leikskóla í Engjalandi sem verður tekinn í notkun á vordögum 2021.
Samþykkt var að velja nafnið Goðheimar. Átján þátttakendur komu með þá tillögu og verður dregið um vinningshafa síðar í sumar. Fræðslunefnd þakkar öllum þeim sem sendu inn tillögur.
Nú þegar er hægt að sækja um leikskóladvöl í Goðheimum á Mín Árborg.