Goðheimar fær Grænfánann í fyrsta
Leikskólinn Goðheimar flaggaði sínum fyrsta Grænfána þann 17. maí.
Við stofnun leikskólans 2021 var tekin ákvörðun um að sækja um Grænfánann og að leikskólinn yrði Skóli á grænni grein.
Fjölbreyttar leiðir eru farnar í því að kenna börnunum að umgangast náttúruna og stuðlað að jákvæðri upplifun þeirra á grænum svæðum í nágrenni skólans einnig er mikið er lagt upp úr orðanotkun tengdri náttúru og umhverfi.
Innilega til hamingju Goðheimar!