Grenndarstöð Eyrarbakka lokað
Vegna slæmrar umgengni hefur verið ákveðið að fjarlægja grenndarstöðina á Eyrarbakka tímabundið.
Umgengni við grendarstöðina er algerlega óviðunandi og flokkun verulega ábótavant. Losun á grenndarstöðinni hefur verið vikuleg í allt sumar og ávallt hefur aðkoman verið í ólagi.
Staðsetning grenndarstöðvar verður endurskoðuð.