Hátíðarkveðjur frá bæjarstjóra Árborgar
Kæru íbúar og starfsfólk nú þegar jólin eru að ganga í garð og daginn farið að lengja erum við flest full tilhlökkunar að eyða tíma með fjölskyldu og vinum yfir hátíðarnar.
Jólin eru tími barnanna og því ekkert eins dýrmæt og búa þeim áhyggjulausa hátíð og huga vel að þeirra velferð. Á sama tíma og jólin eru tími gleði og samveru getur aðventan einnig verið tími söknuðar og sorgar hjá svo mörgum og því mikilvægt að hlúa að þeim.
Sveitarfélagið Árborg hefur vaxið og dafnað síðustu ár og vill ég nota tækifærið og bjóðum alla nýja íbúa velkomna.
Hvert nýtt ár felur í sér ný tækifæri, óskrifað blað og hef ég fulla trú á að með samheldnu átaki okkar allra munum við vinna okkur út úr þeim áskorunum sem sveitafélagi stendur frammi fyrir. Ég er full tilhlökkunar fyrir næstu árum og hef mikla trú á að Árborg muni vaxa og dafna áfram enda mikill mannauður og tækifæri sem búa í samfélaginu.
Kæru íbúar og vinir ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, megi jólin verða okkur öllum gleðileg og gjöful.
Fjóla St. Kristinsdóttir, bæjarstjóri