Hinsegin vika Árborgar 2023
Við viljum vekja athygli á hinsegin viku Árborgar sem verður haldin hátíðleg í annað sinn vikuna 16 - 22 janúar næstkomandi.
Sveitarfélagið leggur áherslu á fræðslu og sýnileika og hvetur að sjálfsögðu öll til þess að taka þátt!
Síðasta hinsegin vika gekk vonum framar og það var frábært að sjá hvað allt samfélagið tók þátt. Frístundageirinn tók þátt á margvíslegan hátt, t.d. með verkefnum tengdum hinsegin samfélaginu, föndri, skreytingum og flaggað var við alla staði.
Nú er um að gera að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn og finna leiðir til þess að halda þessa viku hátíðlega. Ýmiskonar efni og áminningar koma einnig þegar nær dregur vikunni.
Nánari upplýsingar gefur Dagbjört Harðardóttir | dagbjort.hardar@arborg.is
Með von um góðar viðtökur, Forvarnarteymi Árborgar
Regnbogakveðjur!