Hjólabrettanámskeið á Selfossi
Hjólabrettaskóli Reykjavíkur blæs til Hjólabrettanámskeiðs á Selfossi í Júní. Námskeiðið hefst laugardaginn 6. Júní 2020 og er 3 laugardaga í röð. Verið er að taka á móti skráningum núna og er námskeiðið mjög fljótt að fyllast, fyrstur skráir fyrstur fær!
Námskeiðin eru fyrir byrjendur og lengra komna en skipt verður í hópa eftir getu. Það er Steinar Fjeldsted sem sér um kennsluna en hann hefur um þrjátíu ára reynslu af hjólabrettum, hefur tekið þátt í fjölda keppna bæði hér á landi og erlendis og verið viðloðinn brettanámskeiðum í um fimmtán ár. Honum til halds og traust verður hjólabrettakappinn Dagur Örn en hann hefur kennt á hjólabretti í nokkur ár með afar góðum árangri.
Á námskeiðinu verður farið yfir öll helstu grunnatriði hjólabrettaíþróttarinnar eins og t.d. ýta sér, hvernig á að standa, snúa við, líkamsstöður og Ollie (hoppa) svo fátt sé nefnt. En fyrir þá sem eru lengra komnir verður farið í ögn flóknari hluti eins og t.d. Kickflip, Shuvit og jafnvel 360 flip svo fátt sé nefnt!
Á námskeiðinu er hjálmaskylda en einnig eru allir hvattir til að koma með þær hlífar sem viðkomandi á. Gott er að eiga hjólabretti en við erum með nokkur lánsbretti sem hægt er að fá lánað.
Námskeiðið fer fram á úti svæðinu við Dverghóla á Selfossi.
Námskeiðin byrja kl. 14:00 og standa til kl. 15:30 og eru í þrjú skipti, þrjá laugardaga í röð (ef veður er slæmt færist skiptið yfir á næsta dag).
Námskeiðið er ætlað aldrinum 5 - 13 ára (ekki fastmótað) og kostar 11.900 kr og fer skráning fram á hjolabrettaskoli@gmail.com og í síma 768 8606
Nafn og kennitala barns þarf að fylgja skráningu sem og nafn og símanúmer forráðamanns.