Hreinsun gatna | Vor 2022
Árleg vorhreinsun gatna í Árborg hefst þriðjudaginn 19. apríl.
Götur verða sópaðar á tilgreindum dagsetningum milli kl. 08:00 - 18:00 og verður unnið eftir eftirfarandi áætlun:
- Þriðjudaginn 19. apríl: Tengigötur.
- Miðvikudagurinn 20. apríl: Stokkseyri og Eyrarbakki.
- Föstudagurinn 22. apríl: Mýrar, hverfi utan ár, götur norðan Austurvegar, Tún og Selfossbæir.
- Mánudagur 25. apríl: Lækir, Móar, Mýrar, Bakkar, Heiðar og Stekkir.
- Þriðjudagur 26. apríl: Grundir, Holt, Vellir, Tún og Vegir.
- Miðvikudagur 27. apríl: Tjarnir, Rimar, Hagar, Hólar og Engi.
- Fimmtudagur 28. apríl: Hólar, Hellur og Lönd.
Nánari upplýsingar um verkáætlun má finna hér.
Mikilvægt að færa bíla
Mikilvægt er að bílar séu færðir úr götunni á meðan á götusópi stendur. Það flýtir mjög fyrir og skilar betri þrifum þegar bílar eru færðir og ekki lagt á ný fyrr en hreinsun er að fullu lokið. Þetta gildir eingöngu um almenn stæði í götunni og á landi sveitarfélagsins en ekki stæði innan lóðarmarka íbúðarhúsa og fyrirtækja.
Símaskilaboð send daginn fyrir götuþvott
SMS er sent til íbúa daginn áður til að tryggja að allt gangi sem best fyrir sig en hefðbundnar skiltamerkingar verða enn fremur settar upp til að láta íbúa og gesti sveitarfélagins vita af götusópun. Þetta er tilraunaverkefni sem önnur sveitarfélög hafa tekið upp og hefur reynst vel. Vonast er til að fólk taki vel í þessa nýbreytni sem skilaboðin eru og liðki til við hreinsunina með því að færa bíla sína en það skilar hreinni og fallegri götum.
Kjörið er að sópa gangstéttar fyrir framan húsið sitt áður en götusópun hefst.