Hundraðasti rampurinn á landsbyggðinni vígður við Sjóminjasafnið á Eyrarbakka.
Í dag, þriðjudaginn 8. ágúst verður 100. rampurinn á landsbyggðinni vígður við Sjóminjasafnið á Eyrarbakka. Athöfnin hefst klukkan 14.00 og eru allir hjartanlega velkomnir.Útdráttur
Átakinu Römpum upp Ísland var formlega hleypt af stokkunum í mars á þessu ári og markmiðið er að byggja 1000 rampa um land allt á næstu fjórum árum. Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, er hvatamaður verkefnisins sem hefur þann tilgang að auka aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, verslun og veitingahúsum á Íslandi. Dagskráin við Sjóminjasafnið hefst með því að leikskólabörn syngja og því næst munu Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Fjóla St. Kristinsdóttir halda stutt ávörp. Að þeim loknum mun Aron Freyr Jónsson vígja 100 rampinn.