Hvaða nemendur byrja í Stekkjaskóla haustið 2021?
Föstudaginn 6. nóvember sl. var tekin fyrsta skóflustunga að Stekkjaskóla, nýjum grunnskóla á Selfossi.
Stefnt er að opnun á hluta af fyrsta áfanga haustið 2021 fyrir nemendur í 1.- 4. bekk (börn fædd 2012 - 2015).
Í skólann fara allir nemendur 1. bekkjar sem búa í skólahverfi Stekkjaskóla. Það á einnig við um verðandi nemendur í 2.- 4. bekk sem búa í skólahverfi nýja skólans og eru skráðir í Sunnulækjarskóla eða Vallaskóla skólaárið 2020 - 2021.
Hverfi Stekkjaskóla afmarkast af:
Fossheiði og Grashaga í norðri, Kjarrmóa, Starmóa, Bleikjulæk, Eyrarlæk, Sílalæk, Þúfulæk, Urriðalæk og Laxalæk í vestri, Stekkjahverfi í suðri (Björkurstykki), Kjarrhólum, Grafhólum, Birkihólum, Lambhaga, Laufhaga og Reyrhaga í austri. Nemendur sem búa í hinum gamla Sandvíkurhreppi og þ.m.t. Tjarnarbyggð fara einnig í Stekkjaskóla.
Allar götur innan hverfis: Akurhólar, Álalækur, Berghólar, Birkihólar, Bjarkarstekkur, Bleikjulækur, Dranghólar, Eyrarbakkavegur, Eyrarlækur, Eyravegur 46,48,50, Fífumói, Flugvöllur, Fossvegur, Gagnheiði, Grafhólar, Grashagi 3a, 3b, 3c, 5, 7, 9, 11, 13 - 24, Hagalækur, Heiðarstekkur, Heimahagi, Hellishólar, Hraunhólar, Kerhólar, Kjarrhólar, Kjarrmói, Lambhagi, Laufhagi, Laxalækur, Lágheiði, Lyngmói, Melhólar, Móstekkur, Móavegur, Nauthagi, Norðurhólar, Reyrhagi, Sílalækur, Starmói, Suðurhólar, Tjarnarmói, Urðarmói, Urðarstekkur, Urriðalækur, Úthagi, Vesturhólar, Þúfulækur.
Nýjar reglur um innritun í grunnskóla er hægt að nálgast hér.