Íbúafundir í Sveitarfélaginu Árborg
Samantekt frá íbúafundum sem Bæjarstjórn Árborgar hélt á Selfossi, Eyrarbakka og Stokkseyri fyrr í vetur.
Á íbúafundunum gafst íbúum færi á að spyrja og ræða við bæjarfulltrúa um hin ýmsu málefni sveitarfélagsins
Fyrirhugað er að halda aðra fundaröð í þéttbýliskjörnunum í mars eða apríl og verða fundirnir auglýstir betur þegar nær dregur.
Til upplýsingar fyrir íbúa þá komu eftirfarandi málefni til umræðu á þeim íbúafundum sem haldnir voru fyrr í vetur.
Íbúafundur á Eyrarbakka
Helstu málefni sem komu til umræðu:
- Klára lýsingu á Fjörustíg og finna leiðir til að takmarka að bílar keyri á stígnum. Öryggi vegfarenda á stígnum verður að vera tryggt.
- Koma af stað framkvæmdum á torginu við “Húsið”. Mikilvægt að það sé sómi af aðkomunni enda margir hagsmunaaðilar og eigendur sem koma að svæðinu.
- Fengin verði niðurstaða um hvort hægt sé að laga gamla skólahúsnæðið eftir að mygla kom upp veturinn 2022
- Klára verkefnið “Vernarsvæði í byggð” en fram kom að það væri á lokametrunum og ætti að klárast formlega í vetur.
- Bera í göngustíg á Sjóvarnargarðinum svo hann sé ekki hættulegur notendum.
- Huga vel að hreinsun og viðhaldi yfir sumartímann svo bærinn sé snyrtilegur og öllum til sóma.
- Spurt út í skipulagsmálin og ný hverfi. Fram kom að bæði væri verið að vinna að lóðum við Nesbrú og Hjalladæl.
- Bæta mætti við leiksvæði í þorpinu.
- Samgöngur strætó verði betri. Fleiri ferðir og skoða sérstaklega hvort það þurfi ekki að vera sérstakur frístundaakstur fyrir börnin.
Íbúafundur á Stokkseyri
Helstu málefni sem komu til umræðu:
- Auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda með því að mála gangbrautir þar sem þarf, bæta við hraðahindrunum á Eyrarbraut og kveikja fyrr á ljósastaurum yfir vetrartímann.
- Vinna í því með landeigendum að bæta girðingar og takmarka lausagöngu búfjár.
- Setja upp strætóskýli á helstu stoppistöðina, hafa tímatöfluna sýnilegri og einfalda og skoða sérstaklega með frístundaakstur barna.
- Spurt um vinnu við fráveitu þar sem einhver hús á Stokkseyri séu með rotþrær.
- Klára lýsingu á Fjörustígnum.
- Deiliskipulag fyrir Eyjasel verði klárað og spurt um stöðu nýrra lóða. Fram kom að Tjarnastígurinn og Dvergasteinar væru á áætlun næstu ára sem myndi auka lóðaframboð.
- Bent á að sundlaugin þarfnist viðhalds.
- Rætt um fjölda gáma og númerslausra bíla sem eru bæði inn á lóðum og opnum svæðum innan Stokkseyri.
Íbúafundur á Selfossi
Helstu málefni sem komu til umræðu:
- Rætt um þá miklu íbúafjölgun sem hefur verið í sveitarfélaginu á áhrif hennar á t.d. innviði.
- Almenningssamgöngur gætu verið betri en fáir nýta sér þær innan Selfoss. Þurfa að vera áræðanlegri og tímatafla einfölduð.
- Farið yfir sorpmálin og breytingar á þeim ásamt mikilvægi þess að fyrirtæki hugsi vel um sitt nánasta umhverfi.
- Ósk um að stígurinn milli Gagnheiði og Haga sé með betri tengingu inn í Gagnheiðina. Sérstaklega í nánd við VISS.
- Sett verði í skipulag ákveðin stæði fyrir hlaupahjólin sem eru í leigu um bæinn.
- Rætt um framtíð Austurvegarins og samstarfið við Vegagerðina í tengslum við mokstur, gangbrautir og fleira.