Innanbæjarstrætó Árborgar fjölgar ferðum frá 2.janúar 2021 - frítt fyrir alla aldurshópa
Á nýju ári verða breytingar á akstri Árborgarstrætó þegar sunnudagar bætast við aksturáætlunina, ferðum fjölgar milli þéttbýliskjarna og frítt verður fyrir alla í ferðir innan Árborgar. Á sama tíma tekur Guðmundur Tyrfingsson ehf. við akstrinum innan Árborgar af Strætó bs.
Í kjölfar akstursútboðs fyrr á árinu þar sem Sveitarfélagið Árborg samdi við lægstbjóðanda, GTS ehf. (Guðmundur Tyrfingsson) hefur verið unnið að breytingum á tímatöflu Árborgarstrætó til að fjölga ferðum á hverjum degi. Hluti breytinganna tóku gildi strax í haust en núna um áramótin bætast við eftirfarandi þættir:
- Frítt er í Árborgarstrætó fyrir alla aldurshópa
- Ferðum fjölgar upp í tíu á virkum dögum og fimm um helgar
- Akstur á sunnudögum bætist við svo vikuaksturinn er orðin samfelldur
Nýja tímatöflu Árborgar má sjá hér að neðan:
Nánari upplýsingar um almenningssamgöngur innan Árborgar og tengingar við leiðakerfi Strætó bs. má sjá hér: Almenningssamgöngur
Þar sem GTS ehf. sjá um mest allan akstur fyrir sveitarfélagið verður sérstakur litur í framrúðu bílanna fyrir hverja aksturleið til auðkenningar fyrir notendur.
- Árborgarstrætóinn verður því með appelsínugulan miða
- Frístundaaksturinn innan Selfoss verður með bleikum miða
- Skólaakstur fyrir BES verður með hvítan miða
- Skólaakstur fyrir Selfoss verður með grænan miða
- Sundakstur úr Sunnulæk verður með gulan miða