Jafnréttisstofa verður í Árborg, nánar tiltekið á Selfossi mánudaginn 27. maí
22. maí 2019
Jafnréttisstofa verður í Árborg, nánar tiltekið á Selfossi mánudaginn 27. maí og boðar til opins fundar á Hótel Selfossi í hádeginu með íbúum á Suðurlandi, sveitarstjórnarfólki, forstöðumönnum stofnana og fyrirtækja.
Á fundinum kynnir Jón Fannar Kolbeinsson, lögfræðingur Jafnréttisstofu hlutverk stofunnar og skyldur sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja samkvæmt:
- Lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008
- Lögum um jafna meðferð einstaklinga óháð kynþætti og þjóðernisuppruna nr. 85/2018 og
- Lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði nr. 86/2018 sem leggja bann við allri mismunun fólks á vinnumarkaði, hvort heldur beina eða óbeina, á grundvelli kynþáttar, þjóðernisuppruna, trúar, lífsskoðunar, fötlunar, skertrar starfsgetu, aldurs, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna eða kyntjáningar.
Lögin um
jafna meðferð tóku gildi í september 2018 en þau kalla á fræðslu um efni þeirra og gildissvið og gefst hér gott tækifæri til að setja sig vel inn í þessi nýju lög.
Fundurinn fer fram frá kl. 12:00-13:00 og í boði verður súpa, brauð og kaffi
Skráning er æskileg og fer fram hér:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSe5tWbStnXo4TbZ6MvbAXVqmQ2VToUl-7I8H1DHXpqkBM_J6A/viewform