Jólahátíðin og viðburðir í Árborg 2020
Fyrir flesta verður jólahátíðin haldin með breyttu sniði í ár.
Kveikt verður á ljósum jólatránna á Stokkseyri og Eyrarbakka fyrsta í aðventu. Vegna aðstæðna verður skemmtunin með breyttu sniði í ár og munu jólasveinarnir dreifa gleðinni um þorpin með söng og galsa.
Sjá nánar um dagskrá og tímasetningar í viðburðadagatali sveitarfélagsins.
Sveitarfélagið reynir að halda í hefðina og opnar fyrsta jólagluggann þann 1. desember í Bókasafni Árborgar, Selfossi.
Nánar um Jólagluggann, staðsetningar og gátuna,er að finna á Jól í Árborg.
Við hvetjum alla til að skoða viðburðadagatalið reglulega, því aðstæður geta breyst og viðburðir með.
Við minnum á að við erum öll almannavarnir. Virðum tveggja metra regluna og forðumst óþarfa snertingu.
Gleðilega hátíð