Jólaljósin kveikt fyrr í Árborg
Sveitarfélagið Árborg flýtir fyrir uppsetningu jólaljósa í ár.
Strax í byrjun nóvember mánaðar hefjumst við handa við að lýsa götur, stofnanir og opin svæði bæjarins með jólaljósum og mun það starf ná hámarki þann 29. nóvember, fyrsta í aðventu, þegar kveikt verður á stóru jólatrjánum á Eyrarbakka, Stokkseyri og Selfossi.
Í ljósi aðstæðna má því búast við breytingum á hátíðarhöldum í tengslum við tendrum jólaljósanna en það verður nánar auglýst síðar.
Sveitarfélagið Árborg vill um leið hvetja alla íbúa til að taka þátt í að lýsa skammdegið á þessum fordæmalausu tímum. Í sameiningu munum við lýsa upp myrkustu daga ársins og mæta nýju ári með hlýju og jákvæðni.