Jólatorg á Eyrarbakka 4. og 11.desember
Jólatorg með handverki, kakó og fleiru verður opið á Eyrarbakka laugardagana 4. og 11.des í samstarfi við Byggðasafn Árnesinga.
Torgið verður opið laugardagana 4. og 11. desember frá kl. 13:00 – 17:00. Ásamt markaðinum verða viðburðir á sviði sem staðsett verður á torginu og í Húsinu á Eyrarbakka sem er opið þessa daga.
Vilt þú selja þína framleiðslu í söluhúsunum?
Einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki sem hafa áhuga á að selja vörur í söluhúsunum sem og aðilar sem vilja koma fram á sviðinu í garðinum t.d. með tónleika, upplestur eða aðra viðburði geta haft samband við Elínu Birnu Bjarnfinnsdóttur, s: 860 7774