Kæru aðstandendur og viðskiptavinir VISS!
Út frá stöðu COVID-19 kórónaveirunnar verður búð okkar að Gagnheiði 39 lokuð frá 12. mars. Einnig munum við takmarka heimsóknir um óákveðinn tíma.
Biðjum við einnig að þeir sem ætla að færa okkur efnivið til að vinna úr að geyma það þar til í vor.
Við munum auglýsa þegar búðin verður opnuð á ný.
Þar sem staða mála og leiðbeiningar geta breyst dag frá degi hvetjum við alla að fylgjast vel með leiðbeiningum á heimasíðu landlæknis | https://www.landlaeknir.is/