Kosning íþróttamanneskjum Árborgar 2023
Fræðslu- og frístundanefnd stendur fyrir kjöri á íþróttamanneskjum Árborgar hvert ár. Í ár eru 10 konur og 14 karlar tilnefnd til að hljóta titilinn. Sjá nánar hvaða tilnefningar bárust.
Síðustu ár höfum við stuðst við netkosningu sem reynst hefur vel. Þessi nýjung gefur öllum áhugasömum tækifæri til að taka þátt og hafa áhrif á hverjir eru valdir íþróttakona og -karl Árborgar 2023.
Netkosningin er opin út miðvikudaginn 20. desember nk. og munu úrslit hennar gilda 20% á móti atkvæðum valnefndarinnar þannig að sú íþróttamanneskja sem endar með flest atkvæði fær 18 stig, næst flest atkvæði gefa 15 stig, þriðja sætið gefur 12 stig, fjórða sætið gefur 9 stig og fimmta sæti 6 stig.