Kveikt á jólaljósunum fimmtudaginn 18. nóvember.
Kveikt verður á jólaljósunum í Sveitarfélaginu Árborg fim. 18.nóv. nk. en vegna sóttvarnartakmarkana þarf að aflýsa formlegri hátíðardagskrá sem átti að fara fram á Brúartorginu í miðbæ Selfoss. Íbúar og fyrirtæki eru hvött til að kveikja á jólaljósunum þennan dag og lýsa upp skammdegið við upphaf Jóla í Árborg 2021.
Allt stefnir í að jólahátíðin í Sveitarfélaginu Árborg geti orðið sannarlega skemmtileg í ár með fjölbreyttum viðburðum fyrir alla fjölskylduna. Tónleikar, jólagluggar, barnaskemmtun, jólagáta, markaður, kveikt á jólatrjám í byggðakjörnum og innkoma jólasveinanna eru hluti af jóladagskránni í Sveitarfélaginu Árborg. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu verður þó eðlilega tekið tillit til sóttvarnartakmarkana hverju sinni. Það er vonandi að samstillt sóttvarnarátak landsmanna næstu vikurnar verði til þess að sem flestir viðburðir geti farið fram í desember.
Því miður þarf því að aflýsa fyrsta viðburðinum sem er hátíðardagskrá fimmtudaginn 18.nóvember þegar kveikt verður á jólaljósunum í sveitarfélaginu. Enginn sérstök tímasetning verður á tendrun ljósanna en þau ættu öll að vera komin upp seinnipart fimmtudagsins. Einstaklingar og fyrirtæki eru líkt og áður sagði hvött til að kveikja líka á jólaljósum 18.nóv. til að lýsa upp skammdegið og taka þátt í upphafi Jóla í Árborg 2021.