Landsátak í sundi | 1. - 28. nóvember
Taktu þátt í að synda hringinn í kringum landið. Allir þátttakendur fara í pott og geta unnið vegleg verðlaun.
Nú stingum við okkur til sunds og syndum hringinn í kringum landið
Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess.
Sund er fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Það er tilvalin þjálfunaraðferð sem styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans en er einnig frábær og skemmtileg tómstundaiðja sem öll fjölskyldan getur stundað saman.
Það voru ferskir fastagestir sem störtuðu sundátakinu í sveitarfélaginu með því að synda nokkrar ferðir í morgunsárið. Mynd: Magnús G Sveinsson
Sveitarfélagið Árborg hvetur íbúa til að vera duglega að nýta sundlaugarnar í nóvember sem og alla daga ársins.
FRÍTT verður í Sundhöll Selfoss og sundlaugina á Stokkseyri 5. og 19. nóvember og hvetjum við alla til að kíkja í laugina hvort sem við ætlum að synda, slaka á í pottunum eða leika með fjölskyldunni.
Hægt verður að nálgast sundæfingar fyrir byrjendur sem og lengra komna í afgreiðslum sundlauga sveitarfélagsins. Öll börn sem koma í sund fá Kobba kút límmiða.
Landsmenn allir, takið þátt í landsátaki í sundi og skráið ykkar vegalengd í hvert skipti sem þið syndið inn á www.syndum.is

