Leikskólinn Goðheimar Selfossi
Byggingar- og undirbúningsvinna við leikskólann Goðheima á Selfossi er í fullum gangi.
Stefnt er að opnun þriggja deilda af sex núna á vorönn. Þó er ekki komin föst dagsetning á opnun leikskólans eins og er.
Á næstu dögum verða send boð til þeirra sem fá úthlutað leikskólaplássi og eru á biðlista Goðheima.
Sótt er um leikskólavist í Goðheimum á sama hátt og í aðra leikskóla í Árborg í gegnum Mín Árborg.
Netfang leikskólans er: godheimar@arborg.is
