Ljósleiðarinn á Stokkseyri og Eyrarbakka
Í sumar mun Ljósleiðarinn leggja ljósleiðara til allra heimila og fyrirtækja á Stokkseyri og Eyrarbakka.
Framkvæmdirnar hefjast nú með hækkandi sól og lokið verður við að tengja öll heimili á Stokkseyri og Eyrarbakka fyrir árslok 2022.
Nú þegar er hafin svokölluð húsaskoðun á Stokkseyri og Eyrarbakka, en hún er liður í vali á lagnaleiðum Ljósleiðarans um bæinn. Þetta verkefni er unnið í samstarfi við Mílu eins og önnur uppbyggingarverkefni Ljósleiðarans undanfarin ár.
Með framkvæmdunum mun heimilum í þessum byggðakjörnum standa til boða Eitt gíg gæðasamband Ljósleiðarans, sem gefur kost á 1.000 megabita gagnaflutningi til hvers heimilis og frá því.
Flest fjarskipta- og afþreyingarfyrirtæki landsins bjóða þjónustu sína um Ljósleiðarann og viðskiptavinum stendur til boða val á milli fjölmargra þjónustuleiða Nova, Vodafone, Símans, Hringdu, Kapalvæðingar og Hringiðunnar.
Ljósleiðarinn byggir upp og rekur ljósleiðaranet fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Með þéttu neti ljósleiðaraþráða tryggir Ljósleiðarinn hraðan, öruggan og hnökralausan aðgang að tækifærum framtíðarinnar.
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Sveitarfélags Árborgar leggur áherslu á að: „við fundum vel fyrir því á tímum COVID hvað góðar nettengingar skipta vinnustaði og heimili í sveitarfélaginu miklu máli, tækifærin sem fylgja eru stórkostleg svo sem möguleikar til fjarfunda, heimavinnu og móttöku háskerpu sjónvarpsefnis. Á Selfossi hafa íbúar tekið framkvæmdum Ljósleiðarans fagnandi og íbúar nær ströndinni hafa beðið með eftirvæntingu eftir að slíkt átak líti dagsins ljós þar. Það er því sérstakt fagnaðarefni að sjá Ljósleiðarann taka af skarið og leggja þennan kraft í ljósleiðaravæðingu á Stokkseyri og Eyrarbakka.“
Hér halda Gísli H. Halldórsson, bæjarstjóri í Árborg, Elísabet E. Guðbjörnsdóttir, verkefnastjóri fjárfestingaverkefna hjá Ljósleiðaranum og Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans, á ídráttarröri Ljósleiðarans sem rúmar þúsund slíka þræði.
Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans tekur undir þetta og bætir við: „Síðustu misserin höfum við fundið alveg nýja eftirspurn eftir gæðasambandi Ljósleiðarans, en það er frá fólki sem vinnur núorðið að verulegu leyti heima hjá sér. Fólk er óhræddara við að flytja lengra frá vinnustaðnum, vitandi að það getur sinnt starfinu sínu heiman frá sér.
Það er þess vegna frábært að geta svarað kalli íbúa eftir ljósleiðara og fjölgað enn frekar þeim heimilum í landinu sem geta tengst Ljósleiðaranum. Með þessu fækkum við þeim byggðakjörnum sem ekki hafa kost á ljósleiðara og höldum áfram að stuðla að ljósleiðaravæðingu landsins.“