Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar
Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í Árborg 2023 var haldin í Sunnulækjarskóla fimmtudaginn 23. mars sl.
Lokahátíðin er samstarfsverkefni grunnskólanna og Skólaþjónustu Árborgar með stuðningi frá Röddum sem áður héldu utan um keppnina á landsvísu. Á lokahátíðinni kepptu þrír fulltrúar frá hverjum skóla sem hafa verið valdir í forkeppnum í sínum skóla.
Undirbúningur fyrir keppnina hefur staðið frá degi íslenskrar tungu 16. nóvember
Keppnin fór þannig fram að keppendur lásu þrisvar sinnum, í fyrstu umferð var lesið textabrot úr bókinni Víti í Vestmannaeyjum eftir Gunnar Helgason, næst voru lesin valin ljóð eftir Aðalstein Ásberg og í þriðju umferð lásu keppendur ljóð að sem nemendur völdu sjálfir.
Sigurvegari síðasta árs kynnti skáld keppninnar
Milli upplestra voru tónlistaratriði í umsjón Tónlistarskóla Árnesinga sem gaf samkomunni hátíðlegan blæ.
Í dómnefnd sátu Ingibjörg Einarsdóttir frá Röddum, formaður dómnefndar, Erna Ingvarsdóttir, kennari í Grunnskóla Hveragerðis og Hrund Harðardóttir, kennsluráðgjafi í Árborg.
Keppendur voru allir vel undirbúnir og eiga þeir og kennarar þeirra hrós skilið
Sigurvegari keppninnar í ár var Anna Metta Óskarsdóttir úr Vallaskóla, í öðru sæti varð Rán Ægisdóttir úr Sunnulækjarskóla og í þriðja sæti varð Kristrún Birta Guðmundsdóttir úr Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Sigurvegurum og keppendum sem og skólunum er óskað til hamingju með glæsilega keppni og flottan árangur.