Lokun á göngustíg vegna framkvæmda HS Veitna
HS Veitur vinna að lagningu strengs meðfram göngustig milli Gagnheiðar og Hagahverfis (sjá á meðfylgjandi mynd).
Göngustígurinn verður lokaður yfir daginn meðan á framkvæmdum stendur en opin á kvöldin og um helgar eftir því sem aðstæður leyfa.
Framkvæmdir hefjast þann 8. júlí og standa þær yfir í 3 - 4 vikur.
Þjónustumiðstöð Árborgar

