Menningarmánuðurinn október 2020
Nú styttist í einn af stóru viðburðum sveitarfélagsins, menningarmánuðinn október sem haldinn verður í ellefta sinn í Sveitarfélaginu Árborg.
Í ár munum við reyna hvað við getum, í ljósi aðstæðna, að kynna fyrir íbúum sveitarfélagsins ólíka viðburði sem höfða til allra aldushópa.
Eins og við vitum öll þá eru hópamyndanir ekki æskilegar næstu misseri og munum við því halda okkur frá stærri viðburðum í ár. Þess í stað viljum við bjóða íbúum uppá fleiri minni viðburði dreifða út mánuðinn víðsvegar í sveitarfélaginu.
Við hvetjum áhugasama sem standa á bakvið viðburði í októbermánuði að tengjast hátíðinni.
Hægt er að senda upplýsingar á Ólaf Rafnar Ólafsson | olafur.rafnar@arborg.is, Braga Bjarnason | bragi@arborg.is eða hringja í síma 480 1900
Við minnum á að aðilar sem halda viðburðir innandyra sem og utan að gæta að fjölda gesta og sóttvörnum. Aðilar þurfa að huga að fjöldatakmörkunum (börn / fullorðnir) og almennri nálægðartakmörkun (2 metrar / andlitsgríma).
Með von um góðar viðtökur
Sveitarfélagið Árborg