Menningarmánuðurinn október 2023 er hafinn
Menningarmánuðurinn október hóf göngu sína að fullu um síðustu helgi með viðburðum laugardag og sunnudag.
Skoffín og skrímsli á Bókasafni Árborgar, Selfossi
Síðasta laugardag í september kynnti Bókasafn Árborgar, í samstarfi við Leikfélag Selfoss, ungum sem öldnum fyrir nykri, marbendli, fjörulalla og fleiri furðuverum. Skrímsli og furðuverur léku aðalhlutverk á bókasafninu ásamt því að starfsfólk Bókasafnsins kynnti splunkuný skrímsli sem hafa skriðið út úr skúmaskotum Bókasafnsins síðustu mánuði.
Þess ber að geta að flestar furðuverurnar bera nöfn, en fimm eru nafnlausar og leitum við nú logandi ljósi að viðeigandi nöfnum á verurnar. Nafnasamkeppni stendur yfir í allan októbermánuð þar sem vinsælustu tillögurnar verða afhjúpaðar laugardaginn 4. nóvember.
Fræðsluganga um Hellisskóg með Skógræktarfélagi Selfoss
Veðrið hefði ekki getað orðið betra fyrir frábæra haustgöngu um Hellisskóg þar sem formaður Skógræktarfélagsins, Örn Óskarsson, stýrði göngu um svæðið, en frá árinu 1985 hefur Hellisskógur við Selfoss verið aðal vinnusvæði skógræktarfélagsins.
Haustlitir og fuglasöngur voru ríkjandi í fræðslugöngunni, þar sem leiðsögumaður lokkaði smáfugla úr fylgsnum sínum með fuglasöng og upplýsti áhugasama um hlutverk þeirra. Á leið gegnum Hellisskóg var gestum kynnt uppbygging svæðisins sem hefur að geyma fjölda trjátegunda ásamt framtíðaráformum svæðisins sem mun styrkja aðstöðu til útivistar árið um kring.
Opið hús hjá Byggðasafni Árnesinga
Í október verður Byggðsafnið opið allar helgar og er frítt inn í Menningarmánuðinum. Byggðasafnið minnir á að nú stendur yfir, í tilefni afmælisárs, sýningin "70 sögur af safni" og er því borðstofa Hússins sneisafull af forvitnilegum gripum sem tengjast daglegu lífi fólks í Árnessýslu á 19. og 20 öld.
70 ára starfsafmæli Byggðasafns Árnesinga ratleikur og ný smiðja
Þetta er merkisár fyrir safnið sem fagnar 70 ára starfsafmæli og þess vegna engin tilviljun að valdar voru 70 frásagnir á sýninguna. Ýmislegt fróðlegt er að sjá í ólíkum sýningarhúsum, hægt að fara í ratleik safnsins og svo verður ný smiðja aðgengileg fyrir unga safngesti í fjárhúsinu. Þar verður hægt að smíða með aðstoð forráðamanna.
Við minnum á sunnudagsfyrirlestra og opið hús í Varðveisluhúsi Byggðasafnsins, Búðarstíg 22
- Sunnudagur 8. október kl. 14 | Jón M. Ívarsson sagnfræðingur, fyrirlestur, „Glæpamenn í Flóanum“.
- Sunnudagur 15. október kl. 14 | Snorri Tómasson hagfræðingur, fyrirlestur, „Skyggnst um í Rútsstaðahverfi í Flóa“.
- Sunnudagur 22. október kl. 14 | Ragnheiður Gló Gylfadóttir fornleifafræðingur, fyrirlestur, „Fornleifauppgröftur á Vesturbúðarhól“.
- Sunnudagur 29. október kl. 14 - 17
Opið hús í varðveisluhúsi Byggðasafns Árnesinga að Búðarstíg 22. Gestir fá leiðsögn um varðveislurýmin og notkun hússins fyrir starfsemi safnsins. Afmælisterta í tilefni 70 ára afmælis Byggðasafns Árnesinga.
Framundan er fjölbreytt dagskrá
Við hvertjum íbúa og aðra áhugasama að skoða fjölbreytta dagskrá Menningarmánaðar á vefsíðu sveitarfélagsins.
Hvort sem það er fróðleikur um bannaðar bækur, kvöldvaka með Fossbúum, krukkuskreytingar, listasmiðja, örnámskeið, fyrirlestrar þá er nokkuð víst að það verði hægt að finna eitthvað fyrir sitt hæfi.