Mikið fannfergi en mokstur gengur vel
Töluvert hefur snjóað í Árborg um helgina og eru öll tæki þjónustumiðstöðvar úti að hreinsa snjó af götum og stígum ásamt þeim verktökum sem sinna snjóhreinsun en samtals eru þetta um 20 moksturstæki.
Snjóhreinsun hófst kl. 04 í nótt og miðar vel. Fólk er hvatt til að sýna tillitssemi og reyna eftir fremsta megni að færa bíla og tæki í þröngum götum til að auðvelda snjóhreinsun.