Nafnasamkeppni um nýjan grunnskóla á Selfossi
Fræðslunefnd Árborgar samþykkti á 24. fundi sínum, miðvikudaginn 26. ágúst, að efna til nafnasamkeppni vegna nýs grunnskóla á Selfossi sem stofna á haustið 2021. Skólinn verður staðsettur í nýja hverfinu í Björkurstykki.
Tillögu að nafni grunnskólans skal skilað í tölvupósti á netfangið skolathjonusta@arborg.is
Upplýsingar um nafn, heimilisfang og símanúmer sendanda þarf að koma fram. Verðlaun eru í boði fyrir þá tillögu sem verður fyrir valinu. Nafnasamkeppnin er öllum opin og eru íbúar hvattir til að taka þátt.
Frestur til að skila inn tillögum er til og með mánudeginum 7. september 2020.