Nafnasamkeppni vegna Brimvers/Æskukots
Fræðslunefnd Sveitarfélagsins Árborgar hefur samþykkt að efna til nafnasamkeppni vegna leikskólans Brimvers/Æskukots á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Er ætlunin að leikskólinn fái eitt nafn í stað tveggja samsettra.
Tillögum að nafni leikskólans skal skilað í tölvupósti á netfangið brimver@arborg.is merkt: Nafnasamkeppni. Upplýsingar um nafn, heimilisfang og símanúmer sendanda þarf að koma fram.
Verðlaun eru í boði fyrir þá tillögu sem verður fyrir valinu en nafnasamkeppnin er öllum opin og eru íbúar á öllum aldri hvattir til að taka þátt.
Frestur til að skila inn tillögum er til og með þriðjudeginum 15. mars næstkomandi.