Netspjall á vef Árborgar
Sett hefur verið upp netspjall á vefsíðu sveitarfélagsins til að bæta við leiðum fyrir íbúa að vera í sambandi með sín erindi.
Netspjallið hefur verið virkt til prufu hjá þjónustuveri Árborgar í ágúst og kominn tími til að kynna það fyrir íbúum. Þjónustuverið býður ykkur velkomin á netspjallið.