Ný gangbrautarljós við Suðurhóla
Líkt og vegfarendur hafa vafalaust tekið eftir þá eru gangbrautarljósin við Suðurhóla komin í virkni.
Ljósin hafa tvennskonar virkni.
Forgangur fyrir gangandi sem þurfa yfir Suðurhólana og þurfa gangandi að þrýsta á hnapp til að gera ljósunum viðvart.
Ljósin eru þannig útbúin að hraðaskynjari er á þeim og virknin því þannig að á meðan ökutæki er yfir hámarkshraða Suðurhóla þá eru ljósin á rauðu, sé hins vegar ökutæki á löglegum hraða þá skipta þau yfir í grænt svo fremi að ekki sé gangandi vegfarandi á leið yfir Suðurhólana.